円卓 - 極度の素晴らしい

29.5.09

 

Mammaðín er blogg

Deleted post. Pity, it was pretty good.
Nah not really.

Eiður ritaði kl. 20:59  ~ 


1.1.09

 

Áramótaávarp

Kæru landsmenn
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að hér hafa orðið miklar hamfarir á liðnu ári, nánar tiltekið síðasta mánuði. Það er ljóst að ekki verður til baka snúið. Fólk verður horfast í augu við orðin hlut, hver á sinn hátt. Því verður ekki breytt að ég bloggaði ekkert í desember og því vantar mánuð í listann neðst á þessari síðu. Ég lýsi því yfir hér með að ég mun ekki taka neina ábyrgð á mínar hendur, nú hvað þá herðar. nei kæru landsmenn, mér er alveg sama. Þið getið brotið rúður og skorið á sjónvarpskapla hvað þið viljið en ég mun sitja rólegur, teygja úr fótum og sötra minn bjór.

Sooo. hvað er í fréttum? Hvað er Britney að bauka í dag? Nú eða allt breska slúðurliðið? Hahaha já þetta lið, alltaf samt við sig. Sooo. hvað annað? Hmm.. Slóvakía komin með evruna og Persaflóaríkin stefna á að taka upp nýjan gjaldmiðil.

Svo á ég auðvitað eftir að svara spurningunum úr síðustu færslu. Látum okkur sjá...

Besta leiðin til að hözla er að panta sér far til Haad Rin og bíða. Engin þörf á að gera eitthvað, bara sér um sig sjálft. Ég hefði haldið að Arne Aarhus hefði vegna reynslu sinnar hoppað fyrstur fram af Glitnishúsinu. Þar sem engin dæmi eru um að starfsfólk hafi brugðið á það ráð (ákváðu þess í stað að faðmast) þá geri ég ráð fyrir að hann hafi keypt útibúið í Oslo eins og aðrir norskir starfsmenn bankans. Samkvæmt heimildum mínum er Sviss ekki með sjóher en þar sem landamæri landsins liggja á stöðuvötnum á amk þremur stöðum þá rekur landherinn svokallaðan sjóher sem nemur 10 trillum. Kirk & Kato? Who? Babylon Zoo hlýtur að sitja á krá í London og rifja upp gamla tíma með EMF, Chumbawamba og öðrum sveitum sem enginn man eftir. Ástþór magnússon sást í sjónvarpinu nýlega, man ekki í tengslum við hvað. Hann hyggst enn koma á friði í heiminum fyrir árið 2000. Ásgeir Kolbeins er frægur fyrir að hafa endurinnréttað baðherbergið sitt í Innlit-Útlit.
Og þar hafið þið það, ég hef betri svör en spenasugurnar í þjóðkirkjunni!

Eiður ritaði kl. 18:54  ~ 


1.11.08

 

¿ ?

Þegar Færeyingur er spurður hvaðan hann sé af gistihúsaeiganda í Víetnam, segir hann „Faroe Islands“ með stolti eða kveðst hann vera danskur til einföldunar? Er eitthvað minnst á Færeyjar í vegabréfunum þeirra?
Ekki veit ég það. En ég veit þó ýmislegt annað og mun ég sitja fyrir svörum út nóvembermánuð. Ykkur gefst kostur á að spyrja um hvað sem ykkur liggur á hjarta í kommentkerfinu. Ég mun svara af bestu getu um lífið og tilveruna. Er htm svalara en html? Er til land sem heitir Belgía? Hef ég betri svör en prestur?

Eiður ritaði kl. 02:42  ~ 


31.10.08

 

nada con nata

No, perdón, no hay nata. Aðeins að æfa mig í spænskunni. Ekki veitir af.

Ok þetta blogg er alveg að drepast, ég veit. Ekki það að ég geti ekki ælt upp einhverju sniðugu að tala um. Ég bara.. ehh. Það er hvort sem er enginn að lesa þetta þannig að enginn mun sakna þess ef þessi síða lendir í bloggkviksyndinu. Ég hef að minnsta kosti betri afsökun en Stebbi kom með. Reyndar er hann með nýtt blogg, kannski ég lesi það.

Ef þér leiðist lesandi góður þá bendi ég á kviddi.blogspot.com nú eða hina geysivinsælu keppni ég er að hugsa mér mann sem fer fram á blogginu hans Kristins.

Ef þið hafið hafið eitthvað við gæði þessa bloggs að athuga þá bendi ég á kommentkerfið hér að neðan. Öllum kommentum verður komið til höfuðstöðva IMF þar sem viðeigandi aðgerðir verða ákveðnar.

Eiður ritaði kl. 07:46  ~ 


26.9.08

 

DVD

Nú á ég lítið af DVD diskum og leigi þá sjaldan. Þrátt fyrir vannýtingu mína á þessari „tækni“ þá hef ég ekki tölu á öllum þeim vandamálum sem ég hef kynnst við hina takmörkuðu reynslu mína af DVD. Til að byrja með þarf maður að passa uppá að kaupa spilara sem styður öll svæði en þegar disknum er troðið í einn slíkan eru vandamálin ekki úr sögunni. Onei. Af einhverjum ástæðum má ekkert menu vera eins. Hver mynd þarf sína eigin flashy valmynd í stað þess að hafa þetta einfalt. Útlitið er mikilvægara en notagildið. Hvað er slæmt við það? Jú valmyndirnar eru misbilaðar. Þær eiga það til að láta tækið frjósa. Líklega er enginn tími til að gæðaprófa hverja einustu sérsniðnu valmynd.

Aðeins út fyrir efnið...hver ákvað eiginlega hversu langur tími á að líða þar til að lati áhorfandinn (sem nennir ekki að handlanga fjarstýringuna greinilega) er búinn að horfa á valmyndina á repeat nógu oft til að vera tilbúinn að horfa á myndina, og hún byrjar spilun af sjálfu sér. Er þetta tíminn sem það tekur að poppa? Til hvers er þessi fídus?

Ok aftur að valmyndunum. Flestar eiga þær það sameiginlegt að birta myndskeið stutt og löng sem ekki er hægt að spóla yfir eða sleppa (t.d. merki framleiðanda, dreyfingaraðila....). Mjög skemmtilegt að hafa ekki stjórn á því sem þú kaupir. Þá er ekki hægt að nota OSD, jafnvel ekki einu sinni á meðan myndin er í spilun. Þú skalt sko taka eftir því hver dreyfir myndinni sama hvað það kostar! Þá er oft ekki hægt að setja á texta á meðan myndin er í spilun. Maður þarf að fara aftur í valmyndina sem er ekki gaman ef þér tókst að fá myndina í spilun án þess að allt frysi. Það skemmtilegasta er þegar ekki er hægt að spóla yfir auglýsingar á undan myndinni. Hverskonar framför er það? Hver vill borga fyrir að horfa á auglýsingar?

Ok þetta er allt í lagi. Ef það er ekki hægt að spila DVD í DVD spilara þá er alltaf hægt að færa sig yfir í gömlu góðu tölvuna. Eeeeen.. þá fyrst verða svæðin að vandamáli því svo virðist sem öll DVD forrit vilji bara spila eitt svæði. Yfirleitt má maður skipta um svæði 5 sinnum og eftir það er maður fastur með síðasta svæðið sem maður horfði á ellegar þarf maður að borga fyrir að skipta oftar í viðbót (hver fær peningana og hverra hagur er þetta?). Stundum er hver diskur með sinn eigin spilara og ekkert annað forrit spilar hann (hef reyndar ekki séð þetta lengi). Oft hef ég getað treyst á VLC en ekki alltaf. Stundum vill diskurinn bara hreinlega ekki fara af stað í geisladrifi eða eitthvað álíka vesen. Núna get ég ekki lengur opnað DVD með VLC. Dell opnar alltaf sitt eigið drasl forrit í staðinn.

Þetta er nú orðin lagleg færsla. Hversu erfitt getur verið að skella einni mynd í tækið án þess að það taki meiri tíma og peninga en maður er þegar búinn að eyða í spilara/forrit og ekki síst diskinn sjálfan sem er sjaldan kjarakaup? Er það skrítið að fólk kjósi niðurhalið frekar? Og er blueray svo framtíðin? Með sínum þremur svæðum. Ætli það. Helvítis kapítalistar! (ps. ég nenni ekki að fara yfir stafsetningu)

Eiður ritaði kl. 01:40  ~ 


5.8.08

 

Zaijian Asia

Nu er adeins einn dagur eftir af dvol minni i Asiu. Eftir manudi af miserfidum ferdalogum (adallega erfidum) og mikid af hljodmengum i eyrunm (adallega i formi lokal tonlistar) er eg loks kominn a afangastad. Hong Kong er sma biti af vesturlondum (minnir soldid a London, bara nytiskulegri og heitari..og ja kinversk) hvad skemmtiefni vardar og var eg buinn ad hlakka mikid til ad komast i almennilegt kvikmyndahus sem eg hef ekki sed sidan i Singapur.

Fyrsta nottin i Hong Kong var slaem og naesti dagur a eftir lika sem eg notadi til ad finna nyja gistingu. Thad er allt i godu nuna og gat eg thvi sinnt erindi minu og leyft vestraenni menningu ad streyma inn um skilningarvit min, fyrst med vidkomu i HMV. Sidan var kominn timi a bio en eg bjost vid ad geta loks sed Zohan sem var "coming soon" i Singapur. Svo var ekki og for eg thvi a Batman i stadinn sem er ansi god thratt fyrir nokkrar gloppur. Thad var lika heilmikil upplifun ad horfa a Hong Kong kafla myndarinnar thvi hann gerist nefnilega i somu byggingu og eg var ad horfa a myndina i! Skemmtileg tilviljun thad.

Eg laet thetta gott heita. Eg aetla ad njota sidasta bitans af Kina thratt fyrir rigningu. Eg vona bara fluginu minu i kvold verdi ekki aflyst vegna hitabeltisstorms. Kina, vel a minnst, er thraelskemmtilegt land. Thetta er eins og heil heimsalfa sem eg er rett buinn ad kroppa i yfirbordid a. Eg kem sko aftir hingad hid fyrsta. En nu thegar eg er ad koma heim kemur topp 3 listi fyrir thad sem eg mun sakna og ekki sakna fra Sudaustur Asiu.

Thad sem eg mun EKKI sakna:
Rutuferdirnar!
Tonlistin!
Motorhjolin!

Thad sem eg mun sakna:
Stelpurnar!
Maturinn!
Loftslagid (ok thad er faranlega heitt og rakt nuna en eg mun orugglega sakna thess i vetur)

Zaijian

Eiður ritaði kl. 08:10  ~ 


18.7.08

 

Snowballs... or lack of them

Jaeja, nu eru oll kortin farin af stad og vonandi skila thau ser oll, serstaklega til Atla, hans kort er liklega enntha i ritskodunarraduneyti Myanmar og bydur brennslu thar sem serstakri nefnd hefur enn ekki tekist ad rada i islenskuna. Thar med er radlegt ad skella inn einu bloggi, svona adur en eg held til Kina thar sem the great firewall of china stendur styrkur.

Til ad byrja med er updeit a solgleraugnakynslodunum (sidan mars 2006). Thannig er mal med vexti ad Snowball IV er eigi lengur a medal vor. *minutu thogn*. Thau fylgdu mer i gegnum morg lond, stor og sma og stodu sig med prydi. Thau letu sko ekki throngar toskur og hord golf a sig fa. Nei thau voru baedi besti vinur mannsins og tharfasti thjonninn. En hvad sem thvi lidur tha var eg ekki buinn ad vera lengi i Tailandi thegar thau hurfu af hofdi minu a dularfullan hatt i sundauginni i Ao Nang. Leit i lauginni og a bakkanum skiladi ekki arangri. Beidni um ad flagga i halfa stong vid allar opinberar byggingar var ekki tekin til greina.

Madur tharf augu. Allavega naestu fimm arin eda svo. Thvi keypti eg ny, ur plasti i thetta skipti sem hefur thann kost ad hitna ekki eins mikid og malmumgjord. Thau lofudu godu i byrjun en Snowball V, odru nafni Ockey, var allt annad en okey thvi adeins tveimur vikum sidar var plastidbrotid a tveimur stodum. Eg limdi thau saman med plastri, eins kul og thad hljomar, en annars lagdi eg theim og keypti ny i Malasyu. Snowball VI voru ekki god kaup. Verdid for yfir €8 markid! og enn verra... sama merki og Snowball V sem voru mikil mistok. Umgjordin brotnadi nokkrum dogum seinna en eg notadi thau samt afram i taepan manud eda thangad til annad glerid tindist. Snowball V og VI voru jordud i ruslafotu vid oformlega athofn.

Ef til vill hafid thid meiri ahuga a mer og minu flakki heldur en solgleraugum. Liklega ekki. Eg kem thvi samt a framfaeri ad eg er a lifi og loksins farinn ad borda hoflega. Heill se thvi. Eg er nuna stadur i Hanoi sem thydir ad nu fer ad styttast i annan endann a thessari hlykkjottu ferd. Og enn betra... eftir adeins thrjar vikur sny eg loks heim til Evropu med sinu thura lofti og slettu vegum. Thad verdur mikil saela en thvi midur mjog dyrt thar sem eg er nu vanur finum veitingastodum og ensuite badherbergjum. Stefnan er svo sett a Keflavik thann 14. agust. Afsakid myndaleysi, thad er alltaf aftengt geisladrif eda eitthvad annad ad thegar mer dettur i hug ad setja inn myndir. Thad verdur ad hafa thad. Hafid thad gott og sjaumst eftir manud.

Eiður ritaði kl. 12:55  ~ 


Saga mannkyns:

október 2004   janúar 2005   febrúar 2005   apríl 2005   maí 2005   júní 2005   júlí 2005   ágúst 2005   september 2005   október 2005   nóvember 2005   desember 2005   janúar 2006   febrúar 2006   mars 2006   apríl 2006   maí 2006   júní 2006   júlí 2006   ágúst 2006   september 2006   október 2006   nóvember 2006   desember 2006   janúar 2007   febrúar 2007   mars 2007   apríl 2007   maí 2007   júní 2007   júlí 2007   ágúst 2007   september 2007   október 2007   nóvember 2007   desember 2007   janúar 2008   febrúar 2008   mars 2008   apríl 2008   maí 2008   júní 2008   júlí 2008   ágúst 2008   september 2008   október 2008   nóvember 2008   janúar 2009   maí 2009  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?